Ceci 1938 Lambrusco rosso
to you
Einfaldleiki og fágað yfirbragð. To You flaskan inniheldur eitt allra vinsælasta vín Ceci-fjölskyldunnar.
Hönnun flöskunnar er einstök, en hún er svört allan hringinn og á toppi hennar hvílir bronslitaður tappi. Með flöskunni fylgja krítar svo hægt er að útbúa hana sem gjöf á sinn eigin máta.
11%
4-8°C
Yfirbragð
Dökkur rúbínrauður litur er einkennandi fyrir þetta vín, ásamt kröftugri freyðingu sem varir lengi í glasinu.
Ilmur
Finna má fyrir hvort tveggja kirsuberjum og hindberjum, sem blandast við krydd og keim af fjólum.
Bragð
Ávaxtaríkt en á sama tíma margslungið. Fáguð og mild tannín til móts við fersk ber og krydd gera þetta vín einstakt.
Skemmtilegt eftirbragð sem rímar við ilminn.
Pörun
Þetta sígilda vín passar einfaldlega með öllum ítölskum mat, hvort sem um er að ræða Parma-skinku, pizzu, pasta eða hvaðeina sem kemur frá þessari vöggu vestrænnar matargerðar.