Terre Verdiane 1813 Lambrusco Amabile
Fíngerðasta vínið frá ítölsku Ceci-víngerðinni, sem stofnuð var árið 1938 í héraðinu Emilia-Romagna.
Amabile-vínið er margverðlaunað og á meðal þekktustu og vinsælustu vínanna frá Ceci. Freyðandi og rúbínrautt, þetta vín er fullkomið fyrir alla máltíðina en stendur frábærlega eitt og sér.
8,5%
4-8°C
Yfirbragð
Líflegur rúbínrauður litur með ríkulegri froðu sem rís hátt í glasinu.
Ilmur
Keimur af berjum og blómum, ásamt kryddleika sem svífur yfir vötnum og ljær víninu ánægjulegan ilm.
Bragð
Rennur mjúklega inn fyrir varirnar, með léttri tannískri áferð og fíngerðum ferskleika.
Pörun
Fjölhæfni vínsins leyfir því að breyta hvaða máltíð sem er í ánægjulega upplifun.
Passar vel með ítalskri hráskinku, forréttum og bragðmiklum ostum. Einnig með bragðmiklu pasta og kjöti.
Síðast en ekki síst er vínið frábært eitt og sér, í góðu glasi.